|
Önnur verslunar hryllingsaga! Spurning um að hætta þessu verslunaræði?? Rétt fyrir hátíð ljóss og friðar á síðasta ári ákvað frökenin að fara með barnið í Kringluna og kaupa afganginn fyrir jólin...újá..fara kl.3 á þorláksmessu í Kringluna...voða góð hugmynd Við fengum rosa bílastæð i...alveg við innganginn á neðri hæð Kringlunnar Vá Orri...við heppin tuðaði mín ...alsæl með lífið og tilveruna. (Alltaf svo ánægð ef ég þarf ekki að labba voða langt) Við fórum svo inn fyrir... ó boy ó boy...það var troðið af fólki!! úúú& uacute; nú var gott að vera svona súper skipulagður og vera með lista yfir það sem við ætluðum að kaupa... Við hlupum í búð frá búð og enduðum í Bónus...af öllum búðum Við vitum það núna að mar fer aldrei í Bónus kl.3 á þorláksmessu í Kringlunni!! Við olboguðum okkur þar út...keyrðum fólk niður og náðum að kaupa allt fyrir jólin þá var að reyna að komast út með allt draslið og dauðþreytt barn Barn sem gat ekki labbað...því þrengslin í Kringlunni voru óbærileg ...hreinlega FÓLK ÚT UM ALLT!! loksins fundum við lyftuna og biðum þar í röð í sirka hálftíma, troðum okkur svo inn..með okkar körfu..hálfsofandi barnið og fullt af öðru fólki sem var algjörlega klest upp við okkur djöflans ógeð...fullt af allskonar ilmvatnsfýlum og annari stybbu... Við vorum ægilega lukkuleg þegar við sáum Skúla bílinn okkar... enn..þá byrjuðu vandræðin... lyklarnir voru horfnir!!! Awwwwwwwwwwwwwwwwwww foooooooooock Sáum leigubíl og skelltum okkur í hann...með alla okkar poka og hafurtask... þegar heim kom þurfti frökenin að troða sér í gegnum glugga.... Það var auðvita hryllilega kalt svo gæru jakkinn fékk að hanga á öxlunum meðan mín reyndi að troða hausnum á sér fyrst inn um gluggann.... 10 mín síðar sat mín föst í glugga skrattanum helv gæran....alltof þykk... krakkinn byrjaður að væla á stéttinni fyrir utan því hann hélt virkilega að hann þyrfti líka að troða sér inn um gluggann eins og móðirin... Ég ýti og ýti og get loksins troðið mér almennilega inn um fjárans gluggann...ég féll öfug á gólfið og heyrði fullt af hrópum...klapp og læti... stend upp og lít út um gluggann... er ekki barnaafmæli í gangi í húsinu á móti....allir að fylgjast með skrítnu konunni sem hékk föst með raskatið út í loftið út um eldhúsgluggann heima hjá sér
|